28. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 4. febrúar 2016 kl. 09:00


Mættir:

Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 09:03
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) 1. varaformaður, kl. 09:03
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 09:03
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ), kl. 09:11
Elín Hirst (ElH), kl. 09:03
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 09:06
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:03
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 09:03
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:03
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 09:03

Nefndarritarar:
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Stígur Stefánsson

1710. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:04
Fundargerð 27. fundur var samþykkt.

2) Schengen og flóttamannastraumurinn Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Berndt Kröner aðstoðarforstjóri Frontex, landamærastofnunar Evrópu ásamt Jóni Pétri Jónssyni og Sigurgeiri Ómari Sigmundssyni frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Kröner gerði grein fyrir starfsemi Frontex og áskorunum tengdum Schengen og flóttamannastraumnum og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 09:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00