41. fundur
utanríkismálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 2. júní 2023 kl. 13:00


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 13:00
Diljá Mist Einarsdóttir (DME) 1. varaformaður, kl. 13:00
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 13:00
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 13:00
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 13:45
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 13:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 13:00
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 13:00
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 13:00

Birgir Þórarinsson var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Teitur Björn Einarsson vék af fundi kl. 14:35. Logi Einarsson vék af fundi kl. 14:45. Jóhann Friðrik Friðriksson vék af fundi kl. 15:10.

Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

2010. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Fundargerðir 37., 39. og 40. fundar voru samþykktar.

2) 890. mál - Evrópska efnahagssvæðið Kl. 13:00
Á fund nefndarinnar komu:
Kl. 13:00 - Arnar Þór Jónsson.
Kl. 13:50 - Skúli Sveinsson.
Kl. 14:20 - Jón Steinar Gunnlaugsson.

Gestirnir fjölluðu um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 3. mál - þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið Kl. 13:40
Á fund nefndarinnar komu Þórður Magnússon og Bergsteinn Einarsson sem kynntu sín sjónarmið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 777. mál - merking á vörum frá hernumdum svæðum Palestínu Kl. 15:10
Bjarni Jónsson var valinn framsögumaður málsins.

Samþykkt var að senda málið til umsagnar.

5) Önnur mál Kl. 15:13
Rætt var um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:15