54. fundur
utanríkismálanefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 14. maí 2012 kl. 15:18


Mættir:

Árni Þór Sigurðsson (ÁÞS) formaður, kl. 15:18
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 15:18
Bjarni Benediktsson (BjarnB), kl. 15:18
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 15:28
Mörður Árnason (MÁ), kl. 15:18
Ragnheiður E. Árnadóttir (REÁ), kl. 15:37
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 15:21

Nefndarritari: Stígur Stefánsson

Bókað:

1) Samningsafstaða ESB, 24. kafli, dóms- og innanríkismál. Kl. 15:19
Á fundinn komu Ragnhildur Helgadóttir formaður samningahóps, Högni S. Kristjánsson frá utanríkisráðuneyti og Inga Þórey Óskarsdóttir frá innanríkisráðuneyti.

Gestirnir kynntu drög að samningsafstöðu íslenskra stjórnvalda vegna kafla um dóms- og innanríkismál í yfirstandandi aðildarviðræðum við ESB og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) Undirbúningur fyrir leiðtogafund NATO í Chicago 20.-21. maí. Kl. 15:54
Á fundinn komu Anna Jóhannsdóttir frá forsætisráðuneyti, Hermann Ingólfsson og Jörundur Valtýsson frá utanríkisráðuneyti. Þau gerðu grein fyrir málinu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Undirbúningur fyrir Ríó +20 ráðstefnuna. Kl. 16:44
Á fund nefndarinnar komu Hermann Ingólfsson, Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir og Anna Katrín Jónsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Danfríður Skarphéðinsdóttir frá umhverfisráðuneyti og Brynhildur Benediktsdóttir frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Þau kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 696. mál - samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu 2012 Kl. 17:07
Á fundinn komu Sigríður Eysteinsdóttir frá utanríkisráðuneyti og Jóhann Guðmundsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Þau kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Fundargerð síðasta fundar. Kl. 17:22
Fundargerð fundar utanríkismálanefndar frá 10. maí var lögð fram til staðfestingar og verður birt á vef Alþingis.

6) Önnur mál. Kl. 17:41
Rætt var um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Helgi Hjörvar var fjarverandi.

Fundi slitið kl. 17:42