26. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 17. janúar 2019 kl. 13:00


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 13:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 13:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 13:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) fyrir Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 13:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 13:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 13:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 13:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:00

Vilhjálmur Árnason var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Dagskrárlið frestað.

2) Ábending umboðsmanns Alþingis um meinbugi á lögum um almannatryggingar, útreikningur á búsetutíma varðandi örorkulífeyri Kl. 13:10
Á fund nefndarinnar mættu Ágúst Þór Sigurðsson og Hildur Sverrisdóttir Röed frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 33. mál - 40 stunda vinnuvika Kl. 13:40
Á fund nefndarinnar mætti Andri Valur Ívarsson frá Bandalagi háskólamanna. Fjallaði hann um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) Sjúkratryggingar, fæðingarþjónusta Kl. 14:10
Nefndin fjallaði um málið.

5) Hlutaúttekt Embættis landlæknis vegna alvarlegrar stöðu á bráðamóttöku Landspítalans Kl. 14:20
Nefndin fjallaði um málið.

6) Önnur mál Kl. 14:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:40