65. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 5. maí 2021 kl. 09:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:03
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:03
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:03
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:03
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:03
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:33
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:03
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:03
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:03

Halla Signý Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 10:40.
Lilja Rafney Magnúsdóttir vék af fundi kl. 09:54.
Vilhjálmur Árnason vék af fundi kl. 09:25.

Ásmundur Friðriksson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Kolbrún Birna Árdal
Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:03
Frestað.

2) 456. mál - aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum Kl. 09:04
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Stefán Daníel Jónsson og Þór Hauksson frá félagsmálaráðuneytinu.

Hlé var á fundi frá 09:25 til 09:29.

3) 561. mál - Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins Kl. 09:29
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigurveigu Þórhallsdóttur frá Umboðsmanni barna og Steinunni Bergmann frá Félagsráðgjafarfélagi Íslands.

Hlé var á fundi frá 09:48 til 10:00.

4) Flutningur lífsýna til greiningar erlendis Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Aðalbjörgu Björgvinsdóttur og Sigurlaugu Benediktsdóttur frá Félagi íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómslækna, Þorbjörn Jónsson og Önnu Margréti Jónsdóttur frá Félagi íslenskra rannsóknalækna, Reyni Tómas Geirsson og Jón Gunnlaug Jónsson.

5) Önnur mál Kl. 10:47
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00