49. fundur
velferðarnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 19. apríl 2023 kl. 09:14


Mætt:

Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) formaður, kl. 09:14
Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 09:14
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:14
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:14
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) fyrir (JSkúl), kl. 09:14
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:14

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Guðmundur Ingi Kristinsson boðuðu forföll.
Guðrún Hafsteinsdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:14
Fundargerðir 43., 44., 45., 46., 47. og 48. fundar samþykktar.

2) 860. mál - aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023--2027 Kl. 09:15
Á fund nefndarinnar komu Berglind Magnúsdóttir og Birna Sigurðardóttir frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, Árni Múli Jónasson frá Landssamtökunum Þroskahjálp, Guðjón Sigurðsson og María Lovísa Guðjónsdóttir frá MND félaginu, Þuríður Harpa Sigurðardóttir og Kjartan Þór Ingason frá Öryrkjabandalagi Íslands, Sigurjón Norberg Kjærnested, María Fjóla Harðardóttir og Gunnur Helgadóttir frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og Steinunn Bergmann og Sirrý Sif Sigurlaugsdóttir frá Félagsráðgjafafélagi Íslands.
Gestir fjölluðu um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 940. mál - aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum Kl. 11:04
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti. Nefndin samþykkti að Jódís Skúladóttir yrði framsögumaður málsins.

4) Önnur mál Kl. 11:05
Nefndin ræddi starfið fram undan.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:11