49. fundur
velferðarnefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 14. maí 2014
kl. 09:00
Mættir:
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:00Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) 1. varaformaður, kl. 09:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD) fyrir PJP, kl. 09:15
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:08
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) fyrir ElH, kl. 09:15
Vilhjálmur Bjarnason og Ásmundur Einar Daðason véku af fundi kl. 9:18.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.
2) 159. mál - vísindarannsóknir á heilbrigðissviði Kl. 09:02
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt sem allir viðstaddir voru sammála.
Að nefndaráliti standa: SII, ÞórE, BjÓ, ÁsF, GuðbH, LRM og UBK.
3) 160. mál - lífsýnasöfn Kl. 09:02
Sjá fyrri dagskrárlið.
4) 517. mál - málefni innflytjenda Kl. 09:15
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt og var það samþykkt af öllum viðstöddum.
Að áliti meiri hluta standa: ÞórE, ÁsF, ÁsmD, VilB og UBK.
Að áliti minni hluta standa: SII, BjÓ, GuðbH og LRM.
5) 5. mál - bráðaaðgerðir til að efla leigumarkað á Íslandi Kl. 09:18
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt sem enginn viðstaddur var andsnúinn.
Að áliti meiri hluta standa: SII, ÞórE, BjÓ, GuðbH og LRM.
6) 10. mál - endurnýjun og uppbygging Landspítala Kl. 09:25
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt sem enginn viðstaddur var andsnúinn.
Að áliti meiri hluta standa: SII, ÞórE, BjÓ, ÁsF, GuðbH, LRM og UBK.
7) 335. mál - mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu Kl. 09:27
Nefndin fjallaði um málið.
8) Önnur mál Kl. 09:29
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:30