18. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 30. nóvember 2018 kl. 10:00


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 10:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 10:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 10:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 10:00
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 10:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 10:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 10:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:13
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:05

Ásmundur Friðriksson boðaði forföll.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerð 16. fundar samþykkt.

2) 24. mál - almannatryggingar Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar mættu Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands og Sólveig Hjaltadóttir og Agla K. Smith frá Tryggingastofnun ríkisins. Fóru þær yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 300. mál - atvinnuleysistryggingar o.fl. Kl. 10:55
Á fund nefndarinnar mættu Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands, Sólveig B. Gunnarsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins og Unnur Sverrisdóttir frá Vinnumálastofnun. Fóru þær yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Þá mættu á fund nefndarinnar Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir og Bjarnheiður Gautadóttir. Fóru þær yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 11:28
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:28