Opnir fundir um Íbúðalánasjóð 8. nóvember - bein útsending
Á síðu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrsluna eru gögn sem tengjast umfjöllun nefndarinnar um málið. Bein útsending verður frá fundunum.
Gestir:
Kl. 11:00 Hallur Magnússon fyrrverandi sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði.
Kl. 13:00 Sigurður Erlingsson forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone og í ríkissjónvarpinu.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.