Opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd þriðjudaginn 14. mars

13.3.2023

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 14. mars í húsnæði nefnda- og greiningarsvið Alþingis í Austurstræti 8–10. Fundurinn hefst kl. 9:10 og stendur til 10:00.

Fundarefnið er alþjóðleg vernd vegna aðstæðna í Venesúela. Gestir fundarins verða Þorsteinn Gunnarsson, formaður kærunefndar útlendingamála, og Jóna Aðalheiður Pálmadóttir yfirlögfræðingur.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.