Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 177. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 338 — 177. mál.
2. umræða.
1. Á undan 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Lífeyrissjóður er eign sjóðfélaga sinna. Innstæða eða réttindi samkvæmt samningi um tryggingavernd eru eign rétthafa.
2. Á eftir 1. gr. komi þrjár nýjar greinar sem verði 3.–5. gr., svohljóðandi:
a. (3. gr.)
Á eftir orðinu „sjóðfélaga“ í fyrri málslið 2. mgr. 18. gr. laganna kemur: sem og hlutdeild hans í hreinni eign til greiðslu lífeyris.
b. (4. gr.)
Við VI. kafla laganna bætist ný grein, 28. gr. a, svohljóðandi:
Félagsfundur fer með æðsta vald í málefnum lífeyrissjóðs. Heimild til að sitja félagsfund hafa sjóðfélagar eða umboðsmenn þeirra. Stjórn lífeyrissjóðs boðar til félagsfundar í samræmi við samþykktir sjóðsins og ber henni að boða til félagsfundar innan viku ef sjóðfélagar með 1/ 10 atkvæðavægi eða endurskoðendur sjóðsins krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.
Atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fer eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöldum þeirra eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðsins. Sjóðfélagi getur veitt öðrum skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði sitt á félagsfundi. Slíkt umboð gildir aldrei lengur en tvö ár og má afturkalla það hvenær sem er.
Aðila sem ber beina ábyrgð á skuldbindingum lífeyrissjóðs eða ábyrgð á breytilegu iðgjaldi til hans er þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. heimilt að fara með meiri hluta atkvæða á félagsfundi sjóðsins og við stjórnarkjör skv. 5. mgr. samkvæmt nánari ákvæðum í samþykktum sjóðsins.
Ársfundur skal haldinn eigi síðar en að loknum fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs. Í fundarboði skal auglýst eftir framboðum til stjórnar og gefa tveggja vikna frest til að lýsa yfir framboði. Á ársfundi skal taka fyrir skýrslu stjórnar, ársreikninga, tryggingafræðilega úttekt, fjárfestingarstefnu, laun stjórnar og tillögu stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins. Boða skal til ársfundar með dagskrá í auglýsingu í fjölmiðlum og á heimasíðu sjóðsins með minnst fjögurra vikna og mest sjö vikna fyrirvara.
Stjórn sjóðsins skal kosin beint á ársfundi eða með almennri leynilegri póstatkvæðagreiðslu fyrir ársfund. Enn fremur er heimilt að kveða á um rafræna kosningu til stjórnar í samþykktum sjóðsins.
c. (5. gr.)
30. gr. laganna fellur brott.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 338 — 177. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum
(skilyrði til greiðslu örorkulífeyris og fjárfestingarheimildir).
Frá Jóni Þór Ólafssyni, Birgittu Jónsdóttur og Helga Hrafni Gunnarssyni.