Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 526. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 793  —  526. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um varnarsvæðið á Miðnesheiði.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Er til skýrsla hjá ráðuneytinu um mögulega nýtingu varnarsvæðisins á Miðnesheiði og ástand mannvirkja þar og, ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður hennar um mögulega nýtingu svæðisins?
     2.      Hefur ráðherra upplýsingar um hvenær nýting mannvirkja á varnarsvæðinu hefst og hver hún verður?