Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 231 — 223. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um tengsl ráðherra við fyrirtækið Orku Energy.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvenær fékk ráðherra síðast launagreiðslu, lán eða aðra fjárhagslega fyrirgreiðslu frá fyrirtækinu Orku Energy eða forsvarsmönnum þess og hversu háar upphæðir var um að ræða?
2. Hefur ráðherra þegið boðsferðir á borð við laxveiðiferðir frá umræddu fyrirtæki eða forsvarsmönnum þess á meðan hann hefur gegnt ráðherradómi?
3. Hefur ráðherra þegið aðrar gjafir, fyrirgreiðslu eða lán frá fyrirtækinu á meðan hann hefur gegnt þingmennsku eða ráðherradómi?
4. Hverjar eru ástæður þess að ráðherra hefur ekki svarað ritstjórnum fimm fjölmiðla um tengsl sín við fyrirtækið og forsvarsmenn þess í tæpt hálft ár og hvernig samrýmist þetta upplýsingalögum að mati ráðherra?
5. Hefur ráðherra greitt götu fyrirtækisins eða forsvarsmanna þess með einhverjum hætti í ráðherratíð sinni?