Ferill 123. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 192 — 123. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um aðgerðaáætlun um orkuskipti.
Frá Olgu Margréti Cilia.
1. Hvernig miðar vinnu að því markmiði þingsályktunar um aðgerðaáætlun um orkuskipti, nr. 18/146, að hlutfall endurnýjanlegrar orku í samgöngum á landi verði 10% fyrir árið 2020 og 40% fyrir árið 2030? Hvert er nú hlutfall endurnýjanlegrar orku í samgöngum á landi?
2. Hvernig miðar vinnu að því markmiði aðgerðaáætlunarinnar að hlutfall endurnýjanlegrar orku fyrir haftengda starfsemi verði 10% árið 2030 og hvert er nú hlutfall endurnýjanlegrar orku fyrir haftengda starfsemi?
3. Hvaða önnur skref, ef einhver, hyggst ráðherra taka á kjörtímabilinu til þess að draga úr notkun þjóðarinnar á jarðefnaeldsneyti?
4. Hefur ráðherra áform um að gera notkun umhverfisvænna orkugjafa aðgengilegri fyrir almenning og ef svo er, hverjar eru áformaðar aðgerðir að þessu marki?
Skriflegt svar óskast.