Ferill 429. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 647 — 429. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2019 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavend) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Heimi Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2019 frá 14. júní 2019 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2394 frá 12. desember 2017 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Smári McCarthy skrifar undir álitið með fyrirvara. Ari Trausti Guðmundsson og Gunnar Bragi Sveinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 4. desember 2019.
| Sigríður Á. Andersen, form. |
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frsm. |
Bryndís Haraldsdóttir. |
| Logi Einarsson. | Silja Dögg Gunnarsdóttir. | Smári McCarthy, með fyrirvara. |
| Þorgerður K. Gunnarsdóttir. |