Ferill 789. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1205  —  789. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um aðgreiningu þjóðarinnar og jöfn tækifæri.

Frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.


     1.      Er ráðherra sammála greiningu hagfræðiprófessorsins Gylfa Zoega sem fram kemur í grein hans í Vísbendingu, tímariti um viðskipti, efnahagsmál og nýsköpun, þann 17. febrúar 2023? Er ráðherra sammála mati hans á þeim afleiðingum sem aðgreining þjóðarinnar, sem hann fjallar um í greininni, hefur?
     2.      Álítur ráðherra að sá ójöfnuður sem af aðgreiningunni hlýst sé ásættanlegur í landi jafnra tækifæra?
     3.      Hvaða ráðstafanir telur ráðherra skynsamlegt og nauðsynlegt að gera á þessu sviði til að tryggja að allir, einstaklingar og fyrirtæki, sitji við sama borð, hafi jöfn tækifæri og beri sömu byrðar þegar beita þarf peningalegu aðhaldi?


Skriflegt svar óskast.