Ferill 1032. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1650  —  1032. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um biðtíma eftir sjúkrabíl og sjúkraflugi.

Frá Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur.


     1.      Hver var meðalbiðtími eftir sjúkrabíl í hverju heilbrigðisumdæmi á tímabilinu 2017–2022, sundurliðað eftir árum og flokkað eftir F1-, F2-, F3- og F4-útköllum?
     2.      Hver var lengsti biðtími eftir sjúkrabíl í hverju heilbrigðisumdæmi á tímabilinu 2017–2022, sundurliðað eftir árum og flokkað eftir F1-, F2-, F3- og F4-útköllum?
     3.      Hver var meðalbiðtími eftir sjúkraflugi í hverju heilbrigðisumdæmi á tímabilinu 2017–2022, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hver var lengsti biðtími eftir sjúkraflugi í hverju heilbrigðisumdæmi á tímabilinu 2017–2022, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.