Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 328 — 315. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til
laga um breytingu á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024 (framlenging).
Frá atvinnuveganefnd.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti frá matvælaráðuneyti. Nefndinni barst tölvupóstur frá atvinnuteymi Grindavíkurbæjar sem mælti með afgreiðslu málsins.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024. Lagt er til að framlengja úrræði laganna um eitt ár eða til 31. desember 2025.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Inga Sæland og Teitur Björn Einarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 4. nóvember 2024.
| Þórarinn Ingi Pétursson, form., frsm. |
Halldóra Mogensen. | Eva Dögg Davíðsdóttir. | |
| Hanna Katrín Friðriksson. | Óli Björn Kárason. | Þorgils Magnússon. | |
| Inga Sæland. | Teitur Björn Einarsson. | ||