Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 330 — 320. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).
Frá velferðarnefnd.
1. gr.
Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir sem eiga rétt á greiðslu örorkulífeyris skv. 24. gr., sbr. 26. gr., eða endurhæfingarlífeyris skv. 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr.
99/2007, á árinu 2024 skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 70.364 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2024, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Samkvæmt greinargerð frumvarps til fjáraukalaga V fyrir árið 2024 (297. mál) er gert ráð fyrir að nýta 1,7 milljarða kr. af svigrúmi á málefnasviði 27 Örorka og málefni fatlaðs fólks til fjármögnunar skattfrjálsrar eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til samræmis við eingreiðslur í desember síðustu ára. Með frumvarpi þessu er lagt til að kveðið verði á um það í ákvæði til bráðabirgða að eingreiðslan skuli ekki teljast til tekna greiðsluþega og teljast þannig skattfrjáls. Auk þess er kveðið á um að hún skuli ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna. Ákvæðið er til samræmis við ákvæði um fyrri eingreiðslur til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.