Ferill 35. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 332 — 35. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Nefndinni barst ein umsögn sem aðgengileg er undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lagt til að ríkisstjórninni verði veitt heimild til að samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í tengslum við sextándu almennu endurskoðun á kvóta sjóðsins og Seðlabanka Íslands veitt heimild til að leggja fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans.
Seðlabanki Íslands lýsti yfir stuðningi við samþykkt frumvarpsins í umsögn sinni til nefndarinnar.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Diljá Mist Einarsdóttir ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 7. nóvember 2024.
| Diljá Mist Einarsdóttir, form. |
Oddný G. Harðardóttir, frsm. |
Ágúst Bjarni Garðarsson. | |
| Gísli Rafn Ólafsson. | Guðbrandur Einarsson. | Jóhann Friðrik Friðriksson. | |
| Sigþrúður Ármann. | Steinunn Þóra Árnadóttir. | ||