Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 353 — 329. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 94/2023 (framlenging).
Frá velferðarnefnd.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. mars 2025“ í 1. málsl. 4. mgr. 10. gr. laganna kemur: 30. júní 2025.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2024“ í 4. mgr. 15. gr. laganna kemur: 31. mars 2025.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Í 4. mgr. 15. gr. laga um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ er kveðið á um að heimilt sé að greiða sértækan húsnæðisstuðning samkvæmt lögunum vegna húsnæðiskostnaðar sem fellur til vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 10. nóvember 2023 til og með 31. desember 2024. Með frumvarpinu er lagt til að úrræðið verði framlengt til 31. mars næstkomandi. Þá er lögð til breyting á 4. mgr. 10. gr. laganna, en í ákvæðinu er kveðið á um að umsóknir um húsnæðisstuðning samkvæmt lögunum þurfi að berast í síðasta lagi 31. mars. Er lagt til að sá frestur verði framlengdur um þrjá mánuði. Er það í samræmi við fyrri frumvörp um framlengingu á úrræðinu.
Framangreindar tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir því að úrræðið um sértækan húsnæðisstuðning verði framlengt. Nefndin telur þó mikilvægt að sem fyrst eftir að nýtt þing kemur saman verði ráðist í vinnu við að gera breytingar á úrræðinu.