Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 361  —  2. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Á eftir 43. gr. komi tveir nýir kaflar, XXI. kafli, Breyting á lögum um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 15/2024, með þremur nýjum greinum, 44., 45. og 46. gr., og XXII. kafli, Breyting á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024, með einni nýrri grein, 47. gr., svohljóðandi:
     a.      (44. gr.)
                 Í stað orðanna „desember 2024“ í inngangsmálslið 4. gr. laganna kemur: mars 2025.
     b.      (45. gr.)
                 Í stað orðanna „31. mars 2025“ í 6. gr. laganna kemur: 30. júní 2025.
     c.      (46. gr.)
                 Við 2. mgr. 9. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ef aðili sem fengið hefur rekstrarstuðning samkvæmt lögum þessum vegna almanaksmánaðar frá janúar til og með mars 2025 greiðir út arð, kaupir eigin hlutabréf eða ráðstafar með öðrum hætti fé til eigenda sinna, öðruvísi en í formi launa eða til samræmis við skuldbindingu sem stofnað var til fyrir 13. nóvember 2024, fyrir 1. apríl 2026 skal hann endurgreiða þann rekstrarstuðning sem hann hefur fengið.
     d.      (47. gr.)
                 Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                 Þrátt fyrir ákvæði 5. mgr. 3. gr. getur beiðni um kaup á íbúðarhúsnæði borist eigi síðar en 1. apríl 2025. Enda liggi fyrir samþykki lánveitenda þar um. Í tilviki umsókna sem berast á tímabilinu 1. janúar 2025 til 1. apríl 2025 skal kaupverð miðast við brunabótamat eins og það er skráð 31. desember 2024.