Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 365 — 2. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
Við bætist nýr kafli, XXI. kafli, Breyting á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018, með einni grein, 44. gr., svohljóðandi:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. eru veiðar á hval óheimilar frá 1. janúar til 31. desember 2025.
Varatillaga:
Við bætist nýr kafli, XXI. kafli, Breyting á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018, með einni grein, 44. gr., svohljóðandi:
Í stað „50.000 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. kemur: 50.000.000 kr.
Greinargerð.