Ferill 326. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Nr. 1/155.
Þingskjal 366 — 326. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (MiCA, DORA og CRR III).
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi fyrirhugaðar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn:
1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn um að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (MiCA).
2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn um að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 frá 14. desember 2022 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1060/2009, (ESB) nr. 648/2012, (ESB) nr. 600/2014, (ESB) nr. 909/2014 og (ESB) 2016/1011, og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2556 frá 14. desember 2022 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB, 2014/65/ESB, (ESB) 2015/2366 og (ESB) 2016/2341 að því er varðar stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann (DORA).
3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn um að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1623 frá 31. maí 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar kröfur vegna útlánaáhættu, leiðréttingaráhættu vegna útlánavirðis, rekstraráhættu, markaðsáhættu og úttakslágmark (CRR III).
Samþykkt á Alþingi 14. nóvember 2024.