Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 373 — 323. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.
Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá skrifstofu Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um þingsköp Alþingis. Í fyrsta lagi er lagt til að treysta grundvöll undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa og að kveðið verði á um valdheimildir hennar, áréttuð þau viðmið sem nefndinni ber að fylgja og um verklagsreglur sem setja skal um störf hennar. Með því verði brugðist við ábendingum í greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa, dags. 23. nóvember 2021, og dómi Mannréttindadómstóls Evrópu um framkvæmd alþingiskosninga í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021. Þá eru lagðar til orðalagsbreytingar í samræmi við kosningalög, nr. 112/2021. Í öðru lagi er lagt til að Alþingi kjósi í framtíðarnefnd að loknum kosningum sem starfi til 31. desember 2025.
Nefndin telur mikilvægt að þær breytingar á þingsköpum sem lúta að undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa nái fram að ganga svo að styrkja megi lagalega stöðu hennar. Þá telur nefndin einnig rétt að veitt sé nægjanlegt svigrúm til að leggja mat á framhald á starfi framtíðarnefndar sem að óbreyttu hefði lokið störfum við lok þessa kjörtímabils.
Í ljósi framangreinds leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Ágúst Bjarni Garðarsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Hildur Sverrisdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Hildur Sverrisdóttir rita undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 14. nóvember 2024.
| Þórunn Sveinbjarnardóttir, form., frsm. |
Eva Dögg Davíðsdóttir. | Sigmar Guðmundsson. | |
| Berglind Ósk Guðmundsdóttir. | Hildur Sverrisdóttir. | Guðmundur Ingi Kristinsson. | |
| Þorgils Magnússon. | Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, með fyrirvara. |
||