Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 381  —  1. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2025.

Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


    Við sundurliðun 2 bætist eftirfarandi:

Heiðurslaun listamanna samkvæmt ákvörðun Alþingis.


    Sá hópur listamanna sem tilgreindur er í fjárlögum fyrir árin 2021, 2023 og 2024, að viðbættum Einari Hákonarsyni og Sigríði Jónu Kristjánsdóttur, nýtur heiðurslauna, sbr. málaflokk 18.30 Menningarsjóðir og lög um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012.

Greinargerð.

    Við fjárlög fyrir árið 2022 bættust ekki fleiri listamenn við þann hóp sem naut heiðurslauna samkvæmt ákvörðun Alþingis 18. desember 2020, sbr. fjárlög fyrir árið 2021. Við fjárlög fyrir árið 2023 og árið 2024 bættust samtals fimm við þann hóp listamanna sem nýtur heiðurslauna. Á árinu 2024 létust Hreinn Friðfinnsson og Matthías Johannessen og eru heiðurslaunaþegar nú 23. Með breytingartillögunni er lagt til að tveir listamenn bætist við þann hóp listamanna sem nú þegar nýtur heiðurslauna samkvæmt lögum um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012.