Ferill 331. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Prentað upp.

Þingskjal 384  —  331. mál.
Leiðréttur texti.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla til ellilífeyrisþega).

Frá velferðarnefnd.


1. gr.

    Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir sem eiga rétt á fullri greiðslu ellilífeyris skv. 16. eða 17. gr., sbr. 21. gr., og að teknu tilliti til almenns frítekjumarks skv. 1. málsl. 3. mgr. 22. gr. laganna á árinu 2024 skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 70.364 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddan fullan lífeyri hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Við ákvörðun eingreiðslunnar skal það ekki hafa áhrif þótt lífeyrisþegi hafi ekki áunnið sér rétt til fulls lífeyris með búsetu hér á landi, sbr. 16. gr., og skal í þeim tilvikum litið svo á að um fullan lífeyri sé að ræða ef ekki kemur til lækkunar hans vegna tekna umfram hið almenna frítekjumark.
    Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2024, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna. Um endurreikning eingreiðslu þessarar og meðferð of- og vangreiðslna fer skv. 3. og 4. mgr. 33. gr., sbr. 34. gr. laganna.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að þeim ellilífeyrisþegum sem eiga rétt á fullum ellilífeyri almannatrygginga á árinu 2024, að teknu tilliti til hins almenna frítekjumarks í 1. málsl. 3. mgr. 22. gr. laganna sem nemur nú 25.000 kr. á mánuði, verði tryggð eingreiðsla að sömu upphæð og mælt er fyrir um í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar (320. mál) um eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.
    Markmið frumvarpsins er að ná til tekjulægsta hóps ellilífeyrisþega sem hafa lægri tekjur en sem nemur frítekjumarki skv. 1. málsl. 3. mgr. 22. gr. laganna og leiða því ekki til skerðingar á ellilífeyri þeirra. Við ákvörðun eingreiðslunnar er aftur á móti ekki gert ráð fyrir að tekið verði tillit til hins sérstaka frítekjumarks vegna atvinnutekna sem kveðið er á um í 2. málsl. 3. mgr. 22. gr.
    Eingreiðslan verður í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða sem lífeyrisþegi á rétt á fullum ellilífeyri. Enn fremur er lagt til að það hafi ekki áhrif á rétt til eingreiðslunnar þótt ellilífeyrisþegi hafi ekki áunnið sér rétt til fulls lífeyris með búsetu hér á landi og er gert ráð fyrir að í slíkum tilfellum skuli litið svo á að viðkomandi hafi áunnið sér fullan lífeyri að því tilskildu að ekki komi til lækkunar hans vegna tekna sem eru umfram hið almenna frítekjumark.
    Kveðið er á um að eingreiðslan skuli ekki teljast til tekna greiðsluþega og teljast þannig skattfrjáls. Auk þess er kveðið á um að hún skuli ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna. Þá er lagt til að Tryggingastofnun skuli endurreikna fjárhæð eingreiðslunnar þegar endanlegar upplýsingar um tekjur greiðsluársins liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, sbr. 33. gr. laganna. Komi í ljós við þann endurreikning að um of- eða vangreiðslu hafi verið að ræða fari um það skv. 34. gr.
    Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun og upplýsingum frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti nær frumvarpið til u.þ.b. 2000 manns.