Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 396 — 327. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til
laga um breytingu á lögum um Mannréttindastofnun Íslands, nr. 88/2024 (frestun gildistöku).
Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.
Með frumvarpinu er lagt til að fresta gildistöku laga um Mannréttindastofnun Íslands til 1. júlí 2025. Samkvæmt lögunum skal Alþingi kjósa fimm manna stjórn stofnunarinnar. Slík kosning hefur ekki farið fram og í ljósi tilkynningar um þingrof 17. október sl. mun stofnunin ekki geta tekið til starfa 1. janúar 2025 eins og lagt var upp með.
Nefndin telur miður að fresta þurfi gildistöku laganna en hjá því verður ekki komist. Ljóst er að röskun hefur nú orðið á þjónustu réttindagæslu fyrir fatlað fólk og því mikilvægt að ráðuneytið grípi til nauðsynlegra úrræða til að draga úr þeirri röskun.
Að mati nefndarinnar er kosning Alþingis í stjórn Mannréttindastofnunar Íslands forsenda þess að hægt sé að hefja undirbúning að stofnun Mannréttindastofnunar. Telur nefndin því rétt að stjórn verði kosin áður en yfirstandandi löggjafarþingi lýkur. Í ljósi tilkynningar um þingrof 17. október sl. leggur nefndin til að sú stjórn starfi þó aðeins í eitt ár. Nefndin áréttar að samkomulag er milli þingflokka um skipun stjórnar og að stærsti þingflokkurinn tilnefni stjórnarformann. Að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum eins og kveðið er á um í lögunum. Með því að kjósa einstaklinga í stjórn áður en yfirstandandi löggjafarþingi lýkur telur nefndin að færa megi gildistöku frumvarpsins framar eða til 1. maí 2025. Leggur nefndin til breytingu þess efnis.
Ljóst er að undirbúningur að stofnun Mannréttindastofnunar Íslands krefst þess að unnið sé skipulega og vandað til allra verka. Stofnunin mun gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að vernd mannréttinda og styrkja stoðir eftirlits Alþingis með mannréttindum. Nefndin leggur ríka áherslu á að stjórnin hefjist þá þegar handa við nauðsynlegar ráðstafanir til þess að stofnunin geti tekið til starfa 1. maí 2025 og sinnt hlutverki sínu með árangursríkum og skilvirkum hætti. Leggur nefndin því til breytingu þess efnis að stjórn upplýsi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með reglubundnum hætti um framvindu verksins, t.d. með því að stjórn komi á fund nefndarinnar og sendi henni reglulega upplýsingar.
Leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2025“ í 1. gr. komi: 1. maí 2025.
2. Á eftir 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Við 1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða I í lögunum bætist: til fjögurra ára.
3. 2. gr. orðist svo:
Ákvæði til bráðabirgða III í lögunum orðast svo:
Við samþykkt laga þessara skal hefja undirbúning að stofnun Mannréttindastofnunar Íslands, þar á meðal skal Alþingi kjósa fimm einstaklinga í stjórn til eins árs svo skjótt sem verða má og eigi síðar en fyrir lok 155. löggjafarþings. Skilyrði 3. mgr. 3. gr. um að ekki skuli kjósa fleiri en þrjá nýja fulltrúa í stjórn á hverjum tíma á ekki við um kosningu samkvæmt þessari grein.
Stjórn Mannréttindastofnunar Íslands skal halda stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd upplýstri með reglubundnum hætti um framgang undirbúnings að stofnun Mannréttindastofnunar Íslands.
4. Í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2025“ í a- og b-lið 3. gr. komi: 1. maí 2025.
Alþingi, 15. nóvember 2024.
| Þórunn Sveinbjarnardóttir, form., frsm. |
Eva Dögg Davíðsdóttir. | Sigmar Guðmundsson. |
| Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | Hildur Sverrisdóttir. | Sigþrúður Ármann. |
| Þorgils Magnússon. | Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. | Þórarinn Ingi Pétursson. |