Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1101  —  146. mál.

3. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um staðfestingu ríkisreiknings 2024.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.


    Málið gekk til nefndar að nýju eftir 2. umræðu þar sem ástæða þótti til að fara betur yfir ýmis mál í tengslum við endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar vegna reikningsins. Á fund nefndarinnar kom Guðmundur B. Helgason ríkisendurskoðandi og tveir starfsmenn stofnunarinnar sem jafnframt eru löggiltir endurskoðendur, Hinrik Þór Harðarson og Hildur Sigurðardóttir.
    Nefndin hefur rætt ítarlega um ábendingar Ríkisendurskoðunar og sérstaklega þær sem snúa að mati á eignasafni Vegagerðarinnar. Vegagerðin hefur upplýst nefndina um að forgangsmál sé að bæta úr þeim annmörkum sem bent hefur verið á varðandi sundurliðun á bókfærðu virði og útreikning afskrifta vegakerfisins.
    Ríkisendurskoðandi metur það svo að endurskoðun ríkisreiknings sé í mun betra horfi nú heldur en verið hefur um árabil. Engu að síður koma fram margvíslegar ábendingar við endurskoðunina.
    Á fundi nefndarinnar með Ríkisendurskoðun var einnig rætt um skort á lögbundnum milliuppgjörum og nauðsyn þess að efla eftirlit með framkvæmd fjárlaga. Fram kom að Ríkisendurskoðun áformar stjórnsýsluúttekt á framkvæmd laga um opinber fjármál með sérstakri áherslu á framkvæmd fjárlaga.
    Nefndin áformar að fylgja betur eftir ýmsum ábendingum og athugasemdum sem fram koma í endurskoðunarskýrslunni með spurningum til Fjársýslu ríkisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 20. apríl 2026.

Sigurjón Þórðarson,
form., frsm.
Dagur B. Eggertsson. Arna Lára Jónsdóttir.
Ingvar Þóroddsson. Pétur Björgvin Sveinsson.