Ferill 36. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1134 — 36. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (gildistími ökuskírteinis).
Frá umhverfis- og samgöngunefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Ökukennarafélagi Íslands, ÖBÍ réttindasamtökum og Landssambandi eldri borgara.
Nefndinni bárust þrjár umsagnir auk minnisblaðs frá innviðaráðuneytinu og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Þá bárust þrjár umsagnir um frumvarpið á 156. löggjafarþingi.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á ákvæði 3. mgr. 60. gr. umferðarlaga um gildistíma fullnaðarskírteinis þess efnis að ekki þurfi að endurnýja ökuskírteini jafn ört eftir 65 ára aldur og samkvæmt gildandi lögum. Breytingin tekur einungis til gildistíma almennra ökuréttinda, þ.e. B-flokks.
Umfjöllun nefndarinnar.
Í 60. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, er kveðið á um gildistíma ökuskírteina. Skv. 1. málsl. 3. mgr. 60. gr. er almennur gildistími fullnaðarskírteinis B-flokks 15 ár en þó fimm ár ef um er að ræða farþegaflutninga í atvinnuskyni, sbr. a-lið 4. mgr. Í málsliðnum er síðan að finna sérreglur um gildistíma eftir aldri umsækjanda sem eru sextugir eða eldri. Þannig er gildistími fyrir umsækjanda sem er orðinn 60 ára tíu ár, 65 ára fimm ár, 70 ára fjögur ár, 71 árs þrjú ár, 72 ára tvö ár og 80 ára eða eldri eitt ár. Almenna reglan um 15 ára gildistíma er í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins um ökuskírteini 2006/126/EB, þ.e. 2. mgr. 7. gr. tilskipunarinnar. Í 3. mgr. sömu greinar er að finna heimild fyrir aðildarríki til að stytta gildistíma ökuskírteina þeirra sem hafa náð 50 ára aldri til þess að geta tekið upp tíðari læknisskoðanir eða aðrar sértækar ráðstafanir á borð við endurmenntunarnámskeið. Með frumvarpinu er lögð til breyting á aldursviðmiðum 1. málsl. 3. mgr. 60. gr. umferðarlaga með það að markmiði að eldri borgarar þurfi ekki að endurnýja ökuskírteini sín eins oft í ljósi þess að lífaldur Íslendinga hefur lengst ásamt því að hreysti hefur almennt aukist. Réttara sé að líta til heilsufars almennt en ekki einungis aldurs og er þar m.a. vísað til reglna um endurnýjun ökuréttinda í Danmörku og Svíþjóð. Í umsögn sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu er að finna eftirfarandi yfirlit yfir fjölda aðila 60 ára og eldri sem hafa íslensk ökuréttindi 10. apríl 2025:
60–75 ára 54.757 aðilar,
75–80 ára 10.821 aðilar,
80–90 ára 8.600 aðilar,
> 90 ára 759 aðilar.
Í umsögnum um málið er frumvarpinu fagnað. Í umsögnum ÖBÍ réttindasamtaka og Landssambands eldri borgara er bent á að gildandi fyrirkomulag hafi í för með sér óþarfa álag og kostnað á eldri ökumenn, stofnanir og heilbrigðiskerfið. Í umsögn Ökukennarafélags Íslands kemur fram það mat félagsins að löngu tímabært sé að gildistími ökuskírteina eldri ökumanna sé endurskoðaður í ljósi þess að aldur þjóðarinnar hefur farið hækkandi og aldraðir búa lengur að góðri heilsu. Þá er bent á að samkvæmt slysatölum Samgöngustofu sé ekki hægt að sjá að eldri ökumenn séu áberandi meðal þeirra sem eru valdir að alvarlegum umferðarslysum.
Í minnisblaði innviðaráðuneytisins til nefndarinnar er tekið undir það að aldur einn og sér segi lítið til um aksturshæfni og eigi það við hvort sem um ræðir 17 ára ökumann eða eldri. Hins vegar fylgi hærri lífaldri auknar líkur á tilvist sjúkdóms sem hafi áhrif á ökuhæfni og sé það mat ráðuneytisins að varlega þurfi að fara í breytingar svo að ökumönnum sem ráði illa eða ekki við akstur sökum aldurs fjölgi ekki með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á umferðaröryggi. Í minnisblaðinu kemur fram að ráðuneytið hafi átt í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið vegna vinnu við breytingu á reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011, þess efnis að læknisvottorðs verði ekki krafist sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri. Segir svo að farið hafi verið í þá vinnu „í kjölfar beiðni heilbrigðisyfirvalda sem hafa, auk annars, bent á að einstaklingar séu almennt heilbrigðari og lifi lengur nú en áður sem og að gildandi kröfur leiði til þess að gefa þarf út mikinn fjölda vottorða ár hvert og því muni breytingarnar draga úr álagi á lækna sem framkvæma læknisskoðanir og veita vottorð“. Tekið er fram að vinnu við reglugerðina sé ekki lokið og verði að horfa til fyrirliggjandi slysatölfræði sem og ávinnings og kostnaðar af gildandi kröfum um læknisvottorð.
Nefndin bendir á að hæfni fólks til að keyra getur verið skert af ýmsum þáttum óháð aldri. Þá áréttar nefndin að frumvarpið felur ekki í sér breytingar á ákvæðum umferðarlaga um afturköllun ökuréttinda og gerir ekki ráð fyrir breytingu á reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011, hvað varðar afturköllun ökuréttinda af heilbrigðisástæðum og afturköllun ökuréttinda vegna skorts á aksturshæfni.
Breytingartillaga.
Aukin þrepaskipting gildistíma.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu skiluðu umsögn um frumvarpið á síðasta löggjafarþingi. Í umsögn lögreglustjórans er lögð til önnur útfærsla á aldursviðmiðum ákvæðisins með vísan til þess að frumvarpið gangi of langt í breytingu á gildistíma ökuskírteina með hliðsjón af umferðaröryggi. Í umsögn sýslumannsins kemur fram að embættið styðji breytingu á núgildandi lögum en það telji þó of langt gengið með tilliti til umferðaröryggis auk þess sem þrep gildistíma samkvæmt frumvarpinu sé of stórt. Telji embættið betra að þrepaskipta gildistíma í smærri skrefum og leggur fram tillögu þess efnis. Það er mat embættisins að með tillögunni sé bæði gætt að umferðaröryggi og hagkvæmnissjónarmiða hagaðila. Tekur nefndin undir það að rétt sé að þrepaskipta gildistíma frekar til samræmis við tillögu sýslumanns að því undanskildu að skerðing hefjist við 70 ára aldur en ekki 60 ára.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Efnismálsliður 1. gr. orðist svo: Gildistími fullnaðarskírteinis er 15 ár fyrir sömu flokka, sbr. þó a-lið 4. mgr. varðandi B-flokk, en þó fyrir umsækjanda sem orðinn er 70–75 ára tíu ár, 76 ára níu ár, 77 ára átta ár, 78 ára sjö ár, 79 ára 6 ár, 80–83 ára fimm ár, 84–85 ára fjögur ár, 86–87 ára þrjú ár, 88–89 ára tvö ár og 90 ára eða eldri eitt ár.
Dagur B. Eggertsson var fjarverandi við afgreiðslu en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Jens Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 28. apríl 2026.
| María Rut Kristinsdóttir, form. |
Ingibjörg Davíðsdóttir, frsm. |
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | |
| Dagur B. Eggertsson. | Elín Íris Fanndal. | Grétar Mar Jónsson. | |
| Halla Hrund Logadóttir. | Ólafur Adolfsson. | ||