Ferill 581. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1135  —  581. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, lögum um Vatnajökulsþjóðgarð og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (gjaldtaka o.fl. vegna Náttúruverndarstofnunar).

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Samtökum ferðaþjónustunnar, Neytendastofu, Náttúruverndarstofnun og Landvernd.
    Nefndinni bárust fjórar umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að ákvæðum í lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, og í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, nr. 60/2007, verði breytt og þau samræmd vegna sameiningar hluta Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs í eina stofnun, Náttúruverndarstofnun, sbr. 5. gr. laga um Náttúruverndarstofnun, nr. 111/2024, sem tóku gildi 1. janúar 2025. Er um að ræða gjaldtökuákvæði, ákvæði um þvingunarúrræði og viðurlög en líkt og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu er mikilvægt að ekki gildi ólíkar reglur eftir því um hvaða svæði ræðir þar sem öll svæðin eru nú í umsjón Náttúruverndarstofnunar. Auk þess er með frumvarpinu lagt til að ákvarðanir samkvæmt fyrrgreindum lögum verði framvegis kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í stað ráðherra og því lögð til breyting á lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, nr. 130/2011.

Umfjöllun nefndarinnar.
Umfjöllun á 156. löggjafarþingi.
    Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá umhverfis- og samgöngunefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 5. júní sl. ( þskj. 661, 214. mál). Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að það sé nú lagt fram að nýju að teknu tilliti til breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar við meðferð málsins á síðasta löggjafarþingi.

Gjaldtaka fyrir þjónustu á náttúruverndarsvæðum, í nágrenni þeirra og innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs.
    Með frumvarpinu er lagt til að Náttúruverndarstofnun fái heimild til að ákveða gjald fyrir þjónustu á náttúruverndarsvæðum eða í nágrenni þeirra, sbr. b-lið 4. gr., og innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs, sbr. 1. efnismgr. 10. gr. Gjöldin geta verið fyrir veitingu tiltekinnar þjónustu eða fyrir aðgang að mismunandi þjónustu á vegum náttúruverndarsvæðis eða Vatnajökulsþjóðgarðs í afmarkaðan tíma. Er þar vísað til gjalds svo sem vegna bílastæða, salerna og tjaldsvæða. Í umsögn Landverndar er áréttað mikilvægi þess að slík gjaldtaka sé skýr og samræmd og að hún nýtist í þágu náttúrunnar, náttúruverndar og almennings. Núverandi fyrirkomulag þar sem fjölmargir aðilar taki gjald fyrir þjónustu, t.d. fyrir bílastæði og salerni, og gestir þurfi að greiða gjald nánast hvar sem stoppað er á leið sinni um landið hafi leitt til óánægju og neikvæðrar upplifunar gesta. Í umsögn Neytendastofu er sérstaklega vikið að upplýsingagjöf á gjaldskyldum bílastæðum og áréttað mikilvægi þess að á gjaldtökusvæðum sé rík upplýsingagjöf þannig að neytendur séu upplýstir um gjaldtökutímabil, fjárhæð gjalda og greiðsluleiðir, ásamt upplýsingum um hugsanleg vanrækslugjöld og útfærslu þeirra sé ekki greitt fyrir gjaldskylt stæði. Stofnunin hafi tekið saman leiðbeiningar um merkingar gjaldskyldra bílastæða og sé það afstaða stofnunarinnar, m.a. í þeim leiðbeiningum og ákvörðunum sem hún hefur birt, að skortur á upplýsingum að þessu leyti feli í sér óréttmæta viðskiptahætti. Samtök ferðaþjónustunnar koma einnig inn á málefnið í sinni umsögn og taka fram að mikilvægt sé að horfa til þess að fyrirkomulag gjaldtöku innan þjóðgarðsins sé einfalt og skýrt. Það þurfi að vera augljóst fyrir hvaða þjónustu sé greitt, bæði hvað varðar þjónustu við gesti og fyrirtæki. Í núverandi fyrirkomulagi þurfi rekstraraðilar á svæðinu að greiða mörg mismunandi gjöld, jafnvel daglega, en þörf sé á því að komið verði á fót einföldu og fyrirsjáanlegu kerfi sem styðji öfluga uppbyggingu og verðmætasköpun á svæðinu. Meiri hlutinn tekur undir nauðsyn þess að gjaldtaka á svæðunum sé einföld, skýr og fyrirsjáanleg og beinir því til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra að taka til skoðunar hvort hægt sé að einfalda og samræma hana með frekari hætti.

Breytingartillögur.
    Meiri hlutinn leggur til breytingartillögur við frumvarpið sem fela í sér minni háttar lagfæringar. Annars vegar á 3. efnismgr. 10. gr. frumvarpsins þar sem mælt er fyrir um að gjöld sem Náttúruverndarstofnun er heimilt að ákveða samkvæmt ákvæðinu skuli renna til þjóðgarðsins og þeirra náttúruverndarsvæða sem hann hefur umsjón með. Í umsögn Náttúruverndarstofnunar er bent á að Vatnajökulsþjóðgarður hefur ekki umsjón með náttúruverndarsvæðum heldur er sú umsjón í höndum Náttúruverndarstofnunar. Leggur stofnunin því til að orðin „og þeirra náttúruverndarsvæða sem hann hefur umsjón með“ falli brott úr 3. efnismgr. 10. gr. frumvarpsins. Meiri hlutinn tekur undir þá tillögu og leggur til breytingu þess efnis.
    Hins vegar er lögð til breyting á 12. gr. frumvarpsins þar sem vísað er til reglugerðar um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu, nr. 324/2025. Sú reglugerð hefur nú verið felld brott með nýrri reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs, nr. 266/2026, sem birt var í Stjórnartíðindum 20. mars sl. Með vísan til þessa leggur meiri hlutinn til breytingu á númeri reglugerðarinnar sem vísað er til í 12. gr. frumvarpsins.
    Þá er lögð til breyting á orðalagi 6. efnismálsl. 1. gr. frumvarpsins um tilnefningu Samtaka ferðaþjónustunnar á áheyrnarfulltrúa séu ekki starfandi ferðamálasamtök á starfssvæði þjóðgarðsins, en sá málsliður kom inn með breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar á síðasta löggjafarþingi, sbr. þskj. 661 í 214. máli. Í stað þess að vísað sé til þess að Samtök ferðaþjónustunnar tilnefni staðbundinn áheyrnarfulltrúa á svæðinu er lagt til að Samtök ferðaþjónustunnar tilnefni áheyrnarfulltrúa af starfssvæði þjóðgarðsins. Er orðalagið þar með fært til samræmis við skýringu í áðurnefndu nefndaráliti. Að lokum eru lagðar til breytingar lagatæknilegs eðlis sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað orðanna „staðbundinn áheyrnarfulltrúa á því svæði“ í 6. málsl. 1. gr. komi: áheyrnarfulltrúa af starfssvæði þjóðgarðsins.
     2.      Í stað orðsins „gefið“ í a-lið 4. gr. komi: veitt.
     3.      Í stað orðsins „ef“ í 3. mgr. d-liðar 9. gr. komi: hvort sem.
     4.      Orðin „og þeirra náttúruverndarsvæða sem hann hefur umsjón með“ í 3. efnismgr. 10. gr. falli brott.
     5.      Í stað tilvísunarinnar „nr. 324/2025“ í 12. gr. komi: nr. 266/2026.

    Dagur B. Eggertsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Jens Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 28. apríl 2026.

María Rut Kristinsdóttir,
form.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir,
frsm.
Dagur B. Eggertsson.
Elín Íris Fanndal. Grétar Mar Jónsson.