Ferill 513. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1139 — 513. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gest frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Nefndinni bárust engar umsagnir.
Með frumvarpinu er kveðið á um setningu nýrra laga um þjónustuveitendur fyrir hópfjármögnun fyrir fyrirtæki. Með þeim er innleitt í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 frá 7. október 2020 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 og tilskipun (ESB) 2019/1937. Notast hefur verið við skammstöfunina ECSP sem heiti á þessari reglugerð.
Samkvæmt ECSP er þjónustuveitandi hópfjármögnunar lögaðili sem veitir hópfjármögnunarþjónustu, þ.e. leiðir saman fjárfesta og verkefniseiganda sem leitast eftir því að fjármagna atvinnurekstur í gegnum hópfjármögnunarvettvang. Á Íslandi er ekki að finna regluverk um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki. Með innleiðingu ECSP verður starfsemin því starfsleyfisskyld með tilheyrandi kröfum sem frumvarpið kveður á um.
Meiri hlutinn telur jákvætt að settur sé skýr rammi um hópfjármögnunarviðskipti. Með þessu móti er stefnt að því að auðvelda umfangsmikla hópfjármögnunarþjónustu á innri markaði Evrópusambandsins og auka þannig aðgang frumkvöðla, sprotafyrirtækja, fyrirtækja í stækkunarferli og lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 28. apríl 2026.
| Arna Lára Jónsdóttir, form. |
Pawel Bartoszek, frsm. |
Ragna Sigurðardóttir. | |
| Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | Sigmundur Ernir Rúnarsson. | ||