Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1143 — 309. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæður).
Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Með frumvarpinu er lagt til að við nafn Háskóla Íslands komi háskólasamstæða og nafni Hólaskóla – Háskólans á Hólum verði breytt í Háskóla Íslands á Hólum, aðildarháskóla. Með því er gert ráð fyrir að skólarnir verði sameinaðir undir háskólasamstæðu Háskóla Íslands. Einnig er gert ráð fyrir nýju heimildarákvæði í lögunum um stofnun háskólasamstæðu.
Fyrsti minni hluti telur að ef frumvarpið verði samþykkt óbreytt séu stigin markviss skref í þá átt að leggja af Hólaskóla. Fyrsti minni hluti bendir á að með orðinu háskólasamstæða er í raun átt við að starfsemi minni háskólans renni saman við starfsemi annars stærri og ætla má að minni háskólinn glati sjálfstæði sínu við þá gerð. Engin trygging er gefin fyrir áframhaldandi skólastarfi á Hólum í frumvarpinu. Fiskeldishluti og stjórnsýsla verða með samþykkt frumvarpsins flutt brott að mestu. Ferðamálafræði er sem fyrr að mestu kennd í fjarnámi. Eftir sitja þá á Hólum hestafræði sem rekin eru að mestu í húsnæði sem er í einkaeigu. Í samhengi við þessi mál má benda á þær áhyggjur og athugasemdir sem fram koma m.a. í umsögnum Bændasamtaka Íslands, Landssambands hestamanna, Félags tamningamanna og Félags íslenskra náttúrufræðinga. Í umsögnum þessara aðila kemur m.a. fram að brýnt sé að varðveita námið á Hólum og tryggja sjálfstæði skólans og að fjármögnun verði tryggð.
Húsakostur á Hólum, ástand hans og framtíðarhlutverk er síðan sérstakt úrlausnarefni sem allsherjar- og menntamálanefnd hefur sem betur fer gert að frumkvæðismáli. Húsakostur hefur drabbast niður vegna áratuga skorts á viðhaldi og þörf er á stórátaki til að bjarga húsnæði á Hólum frá eyðileggingu, bendir 1. minni hluti á umsögn Jóns Bjarnasonar um það efni. Forsjá staðarins þarf síðan að skýra en það er ekki gert í frumvarpinu. Hólastaður er einn merkilegasti hornsteinn íslenskrar sögu og menningar og þarf að sýna staðnum þá virðingu sem honum sæmir.
Alþingi, 29. apríl 2026.
Þorsteinn B Sæmundsson.