Ferill 688. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1291  —  688. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001 (matsverð fasteigna í Grindavíkurbæ).

Frá velferðarnefnd.


1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 27. gr. skal matsverð fasteigna í sveitarfélaginu Grindavíkurbæ vegna ársins 2027 miðast við sama verð og fasteignamat ársins 2024, þ.e. gangvirði eigna í febrúar 2023.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpinu er lagt til að við lög um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða þar sem kveðið verði á um að þrátt fyrir ákvæði 27. gr. laganna skuli fasteignamat í sveitarfélaginu Grindavíkurbæ miðast við sama verð og fasteignamat ársins 2024, þ.e. gangvirði eigna í febrúar 2023.
    Tilefni frumvarpsins er sú óvissa sem uppi er vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga en náttúruhamfarir á skaganum, þ.e. jarðhræringar og eldsumbrot, hafa varað frá árinu 2019. Fyrsta eldgosið tengt þessum umbrotum hófst í mars 2021 við Fagradalsfjall en þann 10. nóvember 2023 opnaðist kvikugangur undir svokallaðri Sundhnúksgígaröð og Grindavíkurbæ. Umfangsmiklar jarðskorpuhreyfingar fylgdu þessum umbrotum, neyðarstigi var lýst yfir og Grindavíkurbær var rýmdur sama dag. Síðan hefur gosið níu sinnum í námunda við Grindavík og aflögunarmælingar sýna að enn er landris og kvikusöfnun undir Svartsengi, þótt smám saman dragi úr hraða kvikuinnstreymis. Út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar sambærilegt magn kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta gosi, sem var í júlí 2025, en magn kviku sem runnið hefur úr Svartsengi í eldsumbrotunum frá því í mars 2024 hefur verið breytilegt, á bilinu 12–31 milljón rúmmetra. Samkvæmt líkanreikningum í nóvember 2025 höfðu um 15 milljónir rúmmetra af kviku safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí sama ár. Því er enn talsverð óvissa um hvenær næsti atburður verður og ekki er hægt að segja fyrir um hvenær hættuástandi við Grindavík lýkur.
    Skv. 27. gr. laga nr. 6/2001 skal skráð matsverð fasteigna vera gangverð umreiknað til staðgreiðslu miðað við heimila og mögulega nýtingu á hverjum tíma sem ætla má að eign hefði í kaupum og sölum í febrúarmánuði næsta á undan matsgerð. Sé gangverð fasteignar ekki þekkt skal matsverð ákveðið eftir bestu fáanlegri vitneskju um gangverð sambærilegra fasteigna með hliðsjón af tekjum af þeim, kostnaði við gerð mannvirkja, aldri þeirra, legu eignar með tilliti til samgangna, nýtingarmöguleikum, hlunnindum, jarðvegsgerð, gróðurfari, náttúrufegurð og öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á gangverð eignarinnar.
    Í ljósi þeirra jarðhræringa sem hafa átt sér stað á Reykjanesskaga undanfarin ár og óvissu um framhald og þróun eldsumbrota á svæðinu er ákveðnum vandkvæðum bundið að meta matsvirði eigna í Grindavík. Við endurmat fasteignamats árið 2025 ákvað Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að halda fasteignamati óbreyttu enda ríkti mikil óvissa um rétt markaðsverð fasteigna í bænum, m.a. þar sem engin fasteignakaup sem teljast til eðlilegrar markaðsvirkni höfðu átt sér stað í bænum eftir rýmingu í nóvember 2023. Sama staða ríkti við síðasta endurmat, en að frátöldum uppkaupum Fasteignafélagsins Þórkötlu, sem starfar samkvæmt lögum nr. 16/2004, hafa engin fasteignakaup átt sér stað í bænum á síðasta ári. Á sama tíma, þ.e. árin 2024 og 2025, var fallið frá innheimtu fasteignagjalda í sveitarfélaginu.
    Staða Grindavíkur frá því að atburðir hófust er enn óbreytt að því leyti að það er enn óvissustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
    Fasteignamat er reiknað eftir nokkrum leiðum, en þær byggjast beint eða óbeint á því hver verðmyndun hefur verið á fasteignum á sambærilegu svæði. Verðmyndun er áætluð út frá kaupsamningum fasteigna á milli ótengdra aðila þar sem samið er um verð út frá markaðsforsendum. Ekki er hægt að miða við þau viðskipti sem átt hafa sér stað í tengslum við uppkaup Þórkötlu enda er kaupverð í þeim viðskiptum ákveðið með lögum nr. 16/2024, um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
    Ekki liggja fyrir nægjanlegar upplýsingar að svo stöddu til þess að taka megi rökstudda ákvörðun um matsverð fasteigna í sveitarfélaginu Grindavíkurbæ. Er því lagt til að farin verði sú leið að halda fasteignamati í sveitarfélaginu óbreyttu árið 2027.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Í greininni er lagt til að fasteignamat í sveitarfélaginu Grindavíkurbæ verði áfram óbreytt og miðist þannig við sama verð og fasteignamat ársins 2024, þ.e. gangvirði eigna í febrúar 2023.

Um 2. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringa.