Ferill 316. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1380 — 316. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa).
(Eftir 2. umræðu, 15. júní.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002.
1. gr.
b. Í stað orðsins „Vinnumálastofnunar“ í 1. málsl. 1. mgr. 19. gr., 1. málsl. 2. mgr. 23. gr., 1. og 2. málsl. 6. mgr. 25. gr. og 1. málsl. 1. mgr., 1. málsl. 2. og 3. mgr. 34. gr. laganna kemur: Útlendingastofnunar.
2. gr.
3. gr.
a. Við 2. málsl. a-liðar bætist: eða stofnunin hafi metið það svo að slík leit sé bersýnilega óþörf með hliðsjón af framboði og stöðu á vinnumarkaði.
b. B- og d-liður falla brott.
c. Við c-lið bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Útlendingastofnun er heimilt að leita umsagnar stéttarfélags eða landssambands launafólks í hlutaðeigandi starfsgrein um laun og önnur starfskjör útlendings telji stofnunin þörf á.
4. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „a–e-liða“ í a-lið 1. mgr. kemur: a-, c- og e-liðar.
b. Í stað tilvísunarinnar „a-, d- og e-liðar“ í 6. mgr. kemur: a- og e-liðar.
5. gr.
6. gr.
a. Í stað „b-, c- og d-liðar“ í b-lið 1. mgr. kemur: c-liðar.
b. Málsliðurinn „Við framlengingu þurfa skilyrði d-liðar 1. mgr. 7. gr., sbr. b-lið 1. mgr., ekki að vera uppfyllt“ í 2. mgr. fellur brott.
7. gr.
a. Í stað „b–d-liðar“ í 1. mgr. kemur: c-liðar.
b. Í stað „a-, b- og e-liðar“ í 2. mgr. kemur: a- og e-liðar.
8. gr.
Atvinnuþátttaka námsmanna.
Þrátt fyrir 1. mgr. er útlendingi heimilt að starfa sem launþegi í hærra starfshlutfalli en 60% þegar eitt af eftirfarandi skilyrðum er uppfyllt:
a. atvinnuþátttaka útlendings fer fram á milli námsanna samkvæmt námskrá viðkomandi skóla,
b. útlendingi hefur áður verið veitt endurnýjað dvalarleyfi hér á landi vegna náms samkvæmt lögum um útlendinga þar sem hann hefur lokið háskólanámi hérlendis og dvelur hér í atvinnuleit á grundvelli sérþekkingar sinnar,
c. um er að ræða formlegt starfsnám sem fram fer á vinnustað. Þegar námsmaður fær dvalarleyfi á grundvelli starfsnáms skal atvinnuþátttaka hans takmarkast við það starfsnám.
Útlendingur skal, samhliða endurnýjun dvalarleyfis, standa skil á upplýsingum um atvinnuþátttöku sína til staðfestingar á að hann hafi ekki starfað umfram heimilað starfshlutfall. Þá er Útlendingastofnun heimilt að óska eftir upplýsingum frá útlendingi um atvinnuþátttöku hans á gildistíma dvalarleyfisins. Útlendingastofnun er heimilt að afla nauðsynlegra upplýsinga frá öðrum opinberum aðilum og vinnuveitanda útlendings til að staðreyna atvinnuþátttöku hans.
Samræmist atvinnuþátttaka útlendings ekki skilyrðum ákvæðis þessa er Útlendingastofnun heimilt að endurskoða eða fella niður heimild hans til atvinnuþátttöku.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari skilyrði fyrir atvinnuþátttöku námsmanna samkvæmt ákvæði þessu, svo sem um gagnaskil vegna starfa útlendings, viðurlög við brotum og skilyrði starfsnáms.
9. gr.
a. Í stað orðanna „tímabundin atvinnuleyfi“ í 1. málsl. kemur: heimild til starfa án atvinnuleyfis.
b. Í stað orðanna „Tímabundið atvinnuleyfi“ í 2. málsl. kemur: Tímabundin heimild til atvinnuþátttöku.
c. Í stað orðanna „slík atvinnuleyfi“ í 4. málsl. kemur: slíkt leyfi.
10. gr.
a. Orðin „sem áframsendir hana svo fljótt sem unnt er til Vinnumálastofnunar“ í 3. málsl. 1. mgr. og 2. málsl. 3. mgr. falla brott.
b. 2., 4. og 8. mgr. falla brott.
c. Orðin „eigi síðar en fjórum vikum“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
11. gr.
a. Orðin „sbr. þó 2. mgr. 18. gr.“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
b. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 2. mgr. kemur: Útlendingastofnun, Vinnueftirlit ríkisins.
c. Á eftir orðinu „Vinnumálastofnunar“ í 3. mgr. kemur: Vinnueftirlits ríkisins.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
a. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 1. mgr. kemur: Útlendingastofnun, Vinnueftirliti ríkisins.
b. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Útlendingastofnun skal reglulega afhenda viðeigandi stéttarfélögum upplýsingar um útgefin atvinnuleyfi samkvæmt lögum þessum sem eru nauðsynlegar í tengslum við eftirlit samkvæmt lögum um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Sömu upplýsingar er heimilt að veita samtökum aðila vinnumarkaðarins óski þeir aðilar eftir því. Með nauðsynlegum upplýsingum er m.a. átt við kennitölu, nafn og starfsheiti launamanns auk kennitölu atvinnurekanda og heiti viðeigandi kjarasamnings sem um starfið gildir samkvæmt ráðningarsamningi.
Ráðherra er heimilt að kveða í reglugerð nánar á um skyldu Útlendingastofnunar til reglubundinnar afhendingar upplýsinga um útgefin atvinnuleyfi, sbr. 7. mgr., m.a. um hvað telst til nauðsynlegra upplýsinga, tíðni afhendingar gagna sem og um örugga afhendingu þeirra.
15. gr.
a. Í stað orðanna „og Vinnumálastofnun“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Útlendingastofnun og Vinnueftirlit ríkisins.
b. Í stað orðanna „lögreglu og Vinnumálastofnun“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: framangreindum aðilum.
c. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 1. málsl. 2. mgr. og 4. mgr. kemur: Vinnueftirliti ríkisins.
d. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: Vinnueftirlit ríkisins.
e. Í stað orðsins „Vinnumálastofnunar“ í 3. mgr. kemur: Vinnueftirlits ríkisins.
f. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er eftirlitsfulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins heimilt að krefja starfsmann um skilríki sem staðfesta heimild hans til atvinnuþátttöku í tengslum við eftirlit á grundvelli laga um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
g. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Eftirlit.
16. gr.
a. 1. mgr. fellur brott.
b. Orðin „í samráði við Vinnumálastofnun“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
17. gr.
18. gr.
a. Í stað orðsins „ráðuneytisins“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: kærunefndar útlendingamála.
b. Í stað orðanna „fjórar vikur“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 15 dagar.
c. Í stað orðsins „ráðuneytinu“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: kærunefndinni.
d. 4. mgr. fellur brott.
II. KAFLI
Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
19. gr.
20. gr.
a. Í stað 1. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Útlendingastofnun tekur ákvörðun um veitingu dvalarleyfis á grundvelli laga þessara en um veitingu atvinnuleyfis á grundvelli laga um atvinnuréttindi útlendinga. Heimilt er að taka ákvörðun um dvalar- og atvinnuleyfi samtímis.
b. 2. mgr. orðast svo:
Umsókn skulu fylgja öll þau gögn og vottorð sem Útlendingastofnun gerir kröfu um til staðfestingar á að umsækjandi uppfylli skilyrði sem lög, reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um.
21. gr.
a. Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr.:
1. Orðin „þar sem þess er krafist“ í 2. málsl. falla brott.
2. Orðið „fyrstu“ í 3. málsl. fellur brott.
b. Eftirfarandi breytingar verða á 8. mgr.:
1. Í stað orðanna „þrjú ár“ kemur: 18 mánuði.
2. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Skilyrði fyrir veitingu slíks dvalarleyfis er að útlendingur hafi lokið bakkalárgráðu á grunnstigi, prófgráðu á meistarastigi eða prófgráðu á doktorsstigi frá innlendum háskóla.
22. gr.
a. Talan „65.“ í 1. málsl. fellur brott.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sama gildir um maka, sambúðarmaka og börn þeirra sem stunda fullt nám á háskólastigi til bakkalárgráðu á grunnstigi, prófgráðu á meistarastigi eða prófgráðu á doktorsstigi á grundvelli 65. gr.
23. gr.
Við gildistöku laga þessara tekur Útlendingastofnun við skyldum Vinnumálastofnunar um umsýslu og útgáfu tímabundinna atvinnuleyfa.
Óafgreiddar umsóknir um tímabundin atvinnuleyfi sem borist hafa fyrir gildistöku laga þessara skulu afgreiddar af Útlendingastofnun.
Kærur sem borist hafa ráðuneyti félags- og húsnæðismála vegna ákvarðana um tímabundin atvinnuleyfi fyrir gildistöku laga þessara skulu afgreiddar af kærunefnd útlendingamála.
24. gr.