Ferill 596. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1392  —  596. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004 (jöfnunargjald).

(Eftir 2. umræðu, 16. júní.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. a laganna:
     a.      Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Dreifiveitur greiða jöfnunargjald í sama hlutfalli og afhent raforka til almennra notenda í eftirfarandi flokkum: Forgangsorku, forgangsorku umfram 1.000 megavattstundir, skerðanlegri orku, skerðanlegri orku umfram 1.000 megavattstundir. Almennir notendur dreifiveitna greiða jöfnunargjald samkvæmt grein þessari af raforku sem er afhent frá dreifiveitu. Dreifiveitur skulu annast innheimtu jöfnunargjalds frá almennum notendum.
     b.      3. mgr. orðast svo:
                  Fjárhæð jöfnunargjalds er 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað upp að 1.000 megavattstundum á almanaksári og 0,52 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað sem er 1.000 megavattstundir á almanaksári eða meiri. Fjárhæð jöfnunargjalds vegna skerðanlegs flutnings raforku er 0,34 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað upp að 1.000 megavattstundum á almanaksári og 0,17 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað sem er 1.000 megavattstundir á almanaksári eða meiri. Raforkunotkun vegna raforku til kyntra hitaveitna skal undanþegin greiðslu jöfnunargjalds. Raforkunotkun vegna hitunar íbúðarhúsnæðis sem uppfyllir skilyrði niðurgreiðslna skv. 4. gr. laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002, skal einnig undanþegin greiðslu jöfnunargjalds. Við ákvörðun jöfnunargjalds vegna raforkutapa í dreifikerfi skal fjárhæð gjalds taka mið af hlutfallslegri skiptingu afhentrar raforku milli framangreindra flokka á viðkomandi veitusvæði. Við ákvörðun jöfnunargjalds samkvæmt þessari málsgrein skulu dreifitöp, sem ráðast af mismun móttekinna og afhentra raforkueininga samkvæmt uppgjöri skv. 5. mgr., bera jöfnunargjald samkvæmt sömu þrepaskiptingu og gildir um forgangsorku.

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 3. gr. a skal fjárhæð jöfnunargjalds frá 1. júlí til 31. desember 2026 vera 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað upp að 500 megavattstundum á því tímabili og 0,52 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað sem er 500 megavattstundir eða meiri á því tímabili.
    Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 3. gr. a skal fjárhæð jöfnunargjalds vegna skerðanlegs flutnings raforku frá 1. júlí til 31. desember 2026 vera 0,34 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað upp að 500 megavattstundum á því tímabili og 0,17 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun sem er 500 megavattstundir eða meiri á því tímabili.


3. gr.

    Lög þessi taka gildi 1. júlí 2026.