Ferill 630. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 19/157.
Þingskjal 1394 — 630. mál.
Þingsályktun
um hvernig minnast skuli 1100 ára afmælis Alþingis.
Alþingi ályktar, í tilefni af 1100 ára afmæli Alþingis árið 2030, að:
a. fela forsætisnefnd að skipa fimm manna framkvæmdanefnd, og jafn marga menn til vara, er undirbúi hátíðahöld í samræmi við ályktun þessa; nefndarmenn skuli hafa reynslu af og þekkingu á fræðslu og miðlun, rannsóknum, sagnfræði og hlutverki og starfsemi Alþingis; forsætisnefnd ráði framkvæmdastjóra í samráði við framkvæmdanefnd; nefndin ásamt framkvæmdastjóra hafi starfsaðstöðu á skrifstofu Alþingis;
b. fela framkvæmdanefndinni að afla hugmynda um hvernig tímamótanna verði minnst af hálfu Alþingis og vinna úr þeim; nefndin skuli velja hugmyndir og verkefni þar sem lögð verði áhersla á lýðræðið, þátttöku almennings og fræðslu og miðlun um sögu þings og þjóðar; nefndin skuli virkja sem flesta til þátttöku í að minnast tímamótanna; nefndin skuli senda tillögur sínar til forsætisnefndar Alþingis til samþykktar;
c. fela forsætisnefnd að undirbúa tillögur um fjárframlög til verkefnisins 2027–2030.
Samþykkt á Alþingi 16. júní 2026.