Ferill 565. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1419  —  565. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (vindorka og verndarflokkur).

Frá Maríu Rut Kristinsdóttur, Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, Degi B. Eggertssyni, Grétari Mar Jónssyni, Ingibjörgu Davíðsdóttur og Sigurði Helga Pálmasyni.


    Á eftir orðinu „búsvæði“ í f-lið 5. gr. komi: íbúa nærumhverfis.

Greinargerð.


    Í 5. gr. frumvarpsins er að finna ákvæði um sérstök sjónarmið við mat virkjunarhugmynda til nýtingar á vindorku sem verkefnisstjórn skal horfa sérstaklega til. Þau sjónarmið koma til viðbótar þeim sjónarmiðum sem greinir í 4. mgr. 3. gr. laganna. Í nefndaráliti með breytingartillögu frá meiri hluta nefndarinnar á þingskjali 1362 var bætt við nýjum lið, f-lið, um að líta ætti til þess hvort virkjunarhugmynd hefði áhrif á alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði, farleiðir fugla og búsvæði, óbyggð víðerni og ásýnd lands og landslags. Flutningsmenn leggja til að bætt verði við f-lið orðunum „íbúa nærumhverfis“ þannig að við mat samkvæmt ákvæðinu verði sérstaklega litið til þess hvort viðkomandi virkjunarhugmynd hafi áhrif á íbúa nærumhverfis. Þar getur verið um að ræða þætti á borð við sjón-, hljóð- og loftmengun, áhrif á jarðrækt, búrekstur og matvælaframleiðslu og annan atvinnurekstur. Líkt og í nefndaráliti meiri hlutans er áréttað að með tillögunni er með engu dregið úr almennum verndarsjónarmiðum laganna, sbr. 4. mgr. 3. gr., og eru því sömu þættir einnig til skoðunar þegar um er að ræða virkjun fallvatns og háhita eins og verið hefur hingað til.