Ferill 32. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1422  —  32. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013 (kaup einstaklings á íbúðarhúsnæði eða lögbýli).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Bændasamtökum Íslands og Viðskiptaráði Íslands.
    Nefndinni bárust þrjár umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2026 eru áætlaðar tekjur af stimpilgjöldum 8.260 m.kr. Áætlað er að um þriðjungur þess komi til vegna kaupa einstaklinga. Til að gæta ráðdeildar í ríkisrekstri getur meiri hlutinn ekki lagt til að frumvarp þetta verði samþykkt að svo stöddu. Málið þarfnast ítarlegri greiningar og mats á áhrifum.
    Að framangreindu virtu getur meiri hlutinn ekki mælt með samþykkt frumvarpsins.

Alþingi, 18. júní 2026.

Arna Lára Jónsdóttir,
form., frsm.
Ragna Sigurðardóttir. Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Sigmundur Ernir Rúnarsson. Pawel Bartoszek.