Ferill 596. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1426  —  596. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004 (jöfnunargjald).

Frá Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni.


    Í stað orðanna „notkun á mælistað“ fjórum sinnum í b-lið 1. gr. og sömu orða þrívegis í 2. gr. komi: samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað.

Greinargerð.


    Markmið breytingartillögunnar er að tryggja að framkvæmd þrepaskiptingar jöfnunargjalds verði í samræmi við efnisleg markmið frumvarpsins. Er lagt til að miða skuli við samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað. Hugtakanotkunin byggist á 2. og 15. gr. reglugerðar um raforkuviðskipti og mælingar, nr. 1150/2019, þar sem „notkunarstaður“ er skilgreindur sem sá staður þar sem dreifiveita afhendir raforku til notanda. Hugtakið „notandi“ er skilgreint í 3. gr. raforkulaga, nr. 65/2003.
    Sé notandi með fleiri en einn mæli á sama notkunarstað leiðir af ákvæðinu að miða skuli við samanlagða notkun samkvæmt öllum þeim mælum við ákvörðun á því hvort viðmiðunarmörkum á almanaksári sé náð. Þannig er komið í veg fyrir mælasöfnun á einni og sömu starfsstöðinni en jafnframt girt fyrir að miðað sé við notkun á sömu kennitölu á landsvísu. Ákvörðun þröskuldar fyrir þrepaskiptingu og gjaldtaka verður því í samræmi við raunverulegt umfang starfsemi á hverjum stað.