Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1429 — 311. mál.
3. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks.
Frá Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur.
1. Í stað orðanna „laga um barnavernd“ í 3. mgr. 1. gr., 2. mgr. 16. gr. og 4. mgr. 17. gr. komi: barnaverndarlaga.
2. 2. mgr. 30. gr. falli brott.
3. Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Ákvæði V. kafla laga þessara gilda einnig um þá þjónustu sem veitt er einstaklingum sem sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn sem gengið hefur fyrir gildistöku laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn, sbr. 4. mgr. 1. gr. og 3. mgr. 16. gr.
Greinargerð.