Ferill 57. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1450  —  57. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (dreifing ösku).

(Eftir 2. umræðu, 19. júní.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a.      2. mgr. orðast svo:
                  Búa ber um öskuna í þar til gerðum duftkerum úr forgengilegu efni. Heimilt er að grafa kerin niður í grafarstæði eða leggja þau í leiði ef vandamenn, er greinir í 1. mgr. 47. gr., óska þess. Sé ákveðið að grafa duftker skal dýpt duftkersgrafar vera um 1 metri.
     b.      4. mgr. orðast svo:
                  Virða ber ósk hins látna um hvar og hvernig ösku er dreift eða hún varðveitt sé ósk hins látna sú að askan sé ekki jarðsett. Um nánari reglur um dreifingu ösku látins manns, svo sem um skráningu í legstaðaskrá og mögulegar takmarkanir, m.a. vegna hollustuhátta, eignarréttar, merkingar dreifingarstaðar og dreifingar ösku í þéttbýli eða á fjölförnum stöðum, fer samkvæmt reglugerð settri með heimild í 1. mgr. 50. gr.
     c.      5. og 6. mgr. falla brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.