Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 168  —  162. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu gegn íslenska ríkinu.

Frá Maríu Rut Kristinsdóttur.


     1.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sem féll í ágúst síðastliðnum og varðaði brot íslenska ríkisins gegn 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu?
     2.      Hver var fjöldi framlagðra kæra hér á landi á árunum 2018–2024 í málum er varðað geta kynbundið ofbeldi? Hversu hátt hlutfall var fellt niður af ákæruvaldi? Hversu hátt hlutfall endaði með dómi? Hversu hátt hlutfall endaði með sakfellingu?
     3.      Hvernig hyggst ráðherra beita sér fyrir því að traust til réttarvörslukerfisins aukist þannig að hlutfall þeirra sem leggja fram kæru vegna ofbeldisbrota aukist?
     4.      Telur ráðherra að þörf sé á sérstökum aðgerðum til að stytta málsmeðferðartíma í ofbeldismálum?


Skriflegt svar óskast.