Ferill 180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 191  —  180. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu Haag-samningsins um gagnkvæma innheimtu meðlags.


Flm.: Jón Gnarr, Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, Guðbrandur Einarsson, Sigmar Guðmundsson, Ingvar Þóroddsson, María Rut Kristinsdóttir, Pawel Bartoszek.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, að fullgilda Haag-samning frá 23. nóvember 2007 um gagnkvæma innheimtu meðlags.

Greinargerð.

    Íslenska ríkið innheimtir ekki sjálfkrafa meðlag þegar meðlagsskylt foreldri býr hér á landi en meðlagsmóttakandi býr erlendis. Tryggingastofnun ríkisins greiðir aðeins meðlag til þeirra sem meðlagsákvörðun kveður á um að skuli þiggja meðlag og búsettir eru á Íslandi. Greiðslurnar falla niður við flutning meðlagsmóttakanda úr landi.
    Nú þegar er í gildi Norðurlandasamningur um innheimtu meðlaga sem var undirritaður í Ósló 23. mars 1962 milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar og öðlaðist gildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 93/1962. Framkvæmd samningsins hér á landi er með þeim hætti að meðlagsmóttakandi, sem búsettur er í öðru samningsríki en meðlagsskylt foreldri, sækir um meðlag í búseturíki sem svo sendir beiðni til búseturíkis meðlagsgreiðanda og annast innheimtu.
    Ekki eru aðgengilegar upplýsingar um hversu margir meðlagsmóttakendur eru nú í þeirri stöðu að njóta ekki milligöngu hins opinbera við innheimtu meðlaga. Óbreytt fyrirkomulag felur það í sér að áfram verður til staðar hindrun, fyrir fólk sem þiggur meðlag, til varanlegra og tímabundinna flutninga milli landa, kann það að draga úr vilja fólks til að sækja sér nám, eða önnur tækifæri, erlendis.
    Haag-samningur frá 23. nóvember 2007 um gagnkvæma innheimtu meðlags miðar að því að gera innheimtu meðlags skilvirkari milli aðildarríkja samningsins.
    Flutningsmenn telja að um grundvallarmál sé að ræða sem varðar réttindi fólks til frjálsrar farar.