Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 193 — 49. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við einkarekna fjölmiðla).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Nefndinni bárust 12 umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu er kveðið á um áframhaldandi stuðning við einkarekna frétta- og dagskrármiðla vegna kostnaðar sem fellur til við miðlun frétta og fréttatengds efnis og við umfjöllun um samfélagsleg málefni.
Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu 5. júní síðastliðinn með áliti með breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar ( þskj. 660, 256. mál) en hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok. Frumvarpið er nú lagt fram að mestu leyti óbreytt en þó með tæknilegum breytingum, líkt og fram kemur í greinargerð, sem varða m.a. gildistöku og umsóknarfrest um styrki. Þá hefur verið tekið tillit til tæknilegrar breytingar sem meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar lagði til við málið. Nefndin hefur haft til hliðsjónar þær umsagnir sem hafa borist um málið auk þeirra umsagna sem liggja fyrir frá 156. löggjafarþingi og eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi.
Meiri hlutinn telur brýnt að málið nái fram að ganga eins fljótt og auðið er svo unnt verði að veita styrki til einkarekinna fjölmiðla á yfirstandandi ári. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi og nauðsyn þess að styðja við einkarekna fjölmiðla svo að hér geti starfað fjölbreyttir og sjálfstæðir fjölmiðlar. Jafnframt bendir meiri hlutinn á að vinna stendur nú yfir við heildarendurskoðun á stuðningskerfi við einkarekna fjölmiðla með það að markmiði að festa í sessi framtíðarfyrirkomulag. Frumvarp þess efnis er væntanlegt á yfirstandandi þingi samkvæmt þingmálaskrá.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Grímur Grímsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 14. október 2025.
| Víðir Reynisson, form. |
Guðmundur Ari Sigurjónsson, frsm. |
Grímur Grímsson. | |
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | María Rut Kristinsdóttir. | ||