Ferill 189. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 204  —  189. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um meðferðarúrræði fyrir börn með alvarlegan fíknivanda.

Frá Jóni Gnarr.


     1.      Hver eru meðferðarúrræðin fyrir börn með alvarlegan fíknivanda hér á landi?
     2.      Hversu mörg börn með alvarlegan fíknivanda geta verið í meðferð á hverjum tíma?
     3.      Hversu lengi stendur meðferð yfir að meðaltali?
     4.      Hversu mörg börn hafa farið í gegnum meðferð við alvarlegum fíknivanda frá árinu 2015 og með hvaða árangri?
     5.      Hefur fjöldi þeirra barna sem leitað hafa meðferðar erlendis, t.d. til Bretlands, Bandaríkjanna eða Suður-Afríku, verið tekinn saman? Ef svo er, hversu mörg börn er um að ræða frá árinu 2015?


Skriflegt svar óskast.