Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 205 — 70. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (EES-reglur).
Frá velferðarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá heilbrigðisráðuneyti.
Nefndinni bárust þrjár umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Málið hefur áður verið lagt fram, síðast á 156. löggjafarþingi ( þskj. 4, 4. mál), og hafði nefndin einnig hliðsjón af umsögnum sem bárust þá og minnisblaði heilbrigðisráðuneytis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Frumvarpið var á 156. löggjafarþingi afgreitt frá velferðarnefnd með áliti nefndarinnar til 2. umræðu hinn 28. apríl 2025 ( þskj. 428) en málið hlaut ekki afgreiðslu. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er það endurflutt lítið breytt með hliðsjón af breytingartillögum velferðarnefndar í fyrrnefndu nefndaráliti frá 156. þingi.
Velferðarnefnd telur þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá 156. þingi til bóta. Vísar nefndin í umfjöllun sína og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti á síðasta löggjafarþingi.
Að höfðu samráði við heilbrigðisráðuneyti leggur nefndin til eina lagfæringu á tilvísun sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Í stað tilvísunarinnar „24. og 25. tölul.“ í d-lið 6. gr. komi: 22. og 23. tölul.
Alþingi, 15. október 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form. |
Kristján Þórður Snæbjarnarson, frsm. |
Ingibjörg Isaksen. |
| Jónína Björk Óskarsdóttir. | Pawel Bartoszek. | Rósa Guðbjartsdóttir. |
| Sigríður Á. Andersen. | Sigurður Örn Hilmarsson. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. |