Ferill 202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 232  —  202. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um fánatíma.


Flm.: Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Sverrir Bergmann Magnússon, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Dagbjört Hákonardóttir, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir, Dagur B. Eggertsson, María Rut Kristinsdóttir, Ingvar Þóroddsson, Guðbrandur Einarsson, Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, Sigurjón Þórðarson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Halla Hrund Logadóttir.


    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að endurskoða fánatíma þannig að heimilt sé að draga þjóðfána Íslendinga á stöng eftir miðnætti og fyrir klukkan sjö að morgni á sumrin. Skal endurskoðuninni vera lokið fyrir 1. maí 2026.

Greinargerð.

    Íslenski fáninn er þjóðfáni Íslendinga. Hann er sameiginlegt tákn allrar þjóðarinnar, allra Íslendinga. Íslenski fáninn er tákn frelsis, samstöðu og sögu þjóðarinnar og endurspeglar náttúruöflin sem við búum við, fjallabláma, ís og eld.
    Með tillögu þessari er lagt til að forsætisráðherra verði falið að endurskoða reglur um fánatíma þannig að heimilt verði að draga þjóðfána Íslendinga á stöng eftir miðnætti og fyrir klukkan sjö að morgni á sumrin.
    Í forsetaúrskurði um fánadaga og fánatíma er mælt fyrir um að fána skuli eigi draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og að jafnaði skuli hann eigi uppi vera lengur en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis. Undanfarin ár hefur komið fram sú ósk að reglur um fánatíma verði rýmkaðar svo að unnt verði að draga þjóðfánann oftar á stöng og við fleiri aðstæður, ekki síst um bjartar sumarnætur þegar sól gengur ekki til viðar. Frá því um miðjan apríl fram undir ágústlok er dimmasti tími sólarhringsins nefndur almannarökkur. Þá fer sólmiðja mest 6° undir sjónbaug og verður ekki nótt í skilningi stjörnufræði. Frá því um miðjan maí fram undir júlílok fer sól vart niður fyrir sjóndeildarhring og er þá bjart allan sólarhringinn.
    Með tillögu þessari er ráðherra falið að breyta reglum um fánatíma þannig að heimilt verði að flagga allan sólarhringinn björtustu daga ársins. Ýmist væri hægt að miða við ákveðnar dagsetningar, t.d. 1. maí og 1. ágúst, eða þegar almannarökkur er orðinn dimmasti tími sólarhringsins.
    Slíkar breytingar ber að gera í anda samstöðu og þverpólitísks samstarfs enda er þjóðfáninn tákn þess sem sameinar þjóðina alla en ekki þess sem skilur okkur að. Jafnframt mætti athuga hvort ástæða sé til að skerpa á ákvæðum um umgengni við þjóðfánann og viðhald hans, svo sem því að hann skuli ávallt vera heill, hreinn og smekklegur, í samræmi við virðingu þá sem honum ber.
    Markmið með tillögunni er að endurspegla það sem íslensk náttúra kennir okkur, að ljósið nýtur sín á eigin forsendum og á eigin tíma. Með því að heimila að þjóðfáninn verði dreginn á stöng allan sólarhringinn á sumrin er fánanum, í orðsins fyllstu merkingu, lyft hátt á loft sem tákni samkenndar og samheldni þjóðarinnar.