Ferill 205. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 235 — 205. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Frá Höllu Hrund Logadóttur.
1. Nægir fjárveiting til Fjölbrautaskóla Suðurlands samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 til að tryggja helgaropnun heimavistar skólans á næsta ári?
2. Telur ráðherra að aðbúnaður og þjónusta á heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands ætti, með tilliti til jafnræðissjónarmiða, að vera sambærileg við heimavistir Menntaskólans að Laugarvatni og Menntaskólans á Akureyri?
3. Hefur ríkisstjórnin fjallað um eða tekið afstöðu til mögulegrar byggingar nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands? Ef svo er, hvaða skref hafa verið ákveðin, hver er tímalína verkefnisins og hvaða fjármagni er gert ráð fyrir að ráðstafa til þess árin 2026 og 2027?
4. Hyggst ráðherra stuðla að frekari aðgerðum eða umbótum til að tryggja að aðbúnaður og þjónusta heimavistar Fjölbrautaskóla Suðurlands verði í samræmi við þarfir nemenda og markmið stjórnvalda í menntamálum?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.