Ferill 108. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 247 — 108. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga og breyting leigufjárhæðar).
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Byggingafélagi námsmanna, Félagsstofnun stúdenta og Húseigendafélaginu.
Nefndinni bárust 14 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Frumvarpið hefur það að markmiði að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Frumvarpinu er ætlað að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningu leigusamninga og auknu gagnsæi um upplýsingar í leigusamningum.
Umfjöllun nefndarinnar.
Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá velferðarnefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 2. júní sl. ( 224. mál) en málið hlaut ekki afgreiðslu. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu var tekið tillit til þeirra breytinga sem meiri hluti velferðarnefndar lagði til í fyrrnefndu nefndaráliti sínu á 156. löggjafarþingi en að öðru leyti er það lagt fram óbreytt.
Meiri hluti velferðarnefndar telur þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá 156. þingi til bóta. Vísar meiri hlutinn í umfjöllun sína og áherslur sem fram koma í áðurnefndu nefndaráliti.
Frávíkjanleg ákvæði.
Nefndin fjallaði á ný um stöðu óhagnaðardrifinna leigufélaga, en um þau var einnig fjallað í nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar á síðasta löggjafarþingi.
Í nýjum umsögnum sem bárust nefndinni komu fram athugasemdir um að kveða þyrfti skýrt á um það í lögunum að leigufélög sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða á borð við Byggingafélag námsmanna eða Félagsstofnun stúdenta séu undanþegin ákvæði 2. gr. frumvarpsins og geti áfram vísitölutengt samninga sína þótt þeir séu gerðir til skamms tíma.
Bent var á mikilvægi þess fyrir starfsemi félaganna að leigufjárhæð geti tekið mið af vísitölu neysluverðs til verðtryggingar frá upphafi samningstíma. Slíkt væri forsenda þess að hægt væri að tryggja fjárhagslegt jafnvægi í rekstri félaganna og halda upphafsverði leigusamninga í lágmarki. Í umsögnum kom fram að án undanþágu þessara félaga frá 2. gr. frumvarpsins kynni leiguverð að hækka.
Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis sem nefndinni barst á síðasta löggjafarþingi komu fram sjónarmið um að ekki væri ástæða til þess að gera greinarmun á því hvort leigjandi leigi af hagnaðar- eða óhagnaðardrifnum leigusala, tók meiri hlutinn undir þau sjónarmið. Meiri hluti velferðarnefndar áréttar þessi sjónarmið sem fram koma í minnisblaði ráðuneytisins. Telur meiri hlutinn að undanþágur frá 2. gr. frumvarpsins kunni að grafa undan markmiðum frumvarpsins sem er að stuðla að auknum fyrirsjáanleika um leigufjárhæð.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Sigríður Á. Andersen var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 22. október 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form. |
Jónína Björk Óskarsdóttir, frsm. |
Eydís Ásbjörnsdóttir. |
| Grímur Grímsson. | Ingibjörg Isaksen. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. |